Íbúðin er á níundu hæð (íbúð 901) með góðu útsýni, 3ja herbergja 92 fm með stæði m/rafhleðslustöð í lokaðri bílgeymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús ( með uppþvottavél ) og stofu í opnu alrými með útgengi á stórar svalir, tvö svefnherbergi, bæði með 160 sm. rúmum, baðherbergi með sturtu. Í opnu rými er svefnsófi. Að auki er ungbarnarúm. Svefnpláss og sængur eru fyrir 6 manns.
Athygli er vakin á því að búið er að setja upp eftirlitsmyndavélar í og við húsið.
Rúmfatnaður og handklæði fylgja ekki íbúðinni.