Ef aðbúnaður á leigðri eign er ekki í samræmi við lýsingu er sjóðfélagi beðinn um að láta strax viðkomandi umsjónarmann vita og á hann þá að leitast við að koma hlutunum í lag. Símanúmer umsjónarmanna eru tilteknir á leigusamningi og á bókunarvefnum. Ef slíkt tekst ekki er sjóðfélagi beðinn um að láta vita á skrifstofu VSFK með því að senda tölvupóst á orlof@vsfk.is, um leið og hægt er. Ef þörf er á skal senda myndir með.