Húsið er 65 fm. Svefnherbergi eru 3 með svefnaðstöðu fyrir 7 og 4 aukadýnur. Borðbúnaður er fyrir 12 manns, örbylgjuofn, uppþvottavél, sjónvarp, myndbandstæki, gasgrill og fl. Heitur pottur. 

Í Hraunborgum er aðstaða eins og best verður á kosið. Þjónustumiðstöð er opin til ágústloka. Þarna er að finna sparkvöll, körfuboltaspjöld, æfinga- golfvöll, mini golf, sundlaug og heita potta ásamt gufubaði. Í þjónustumiðstöð er þvottavél og þurrkari.