Í fjölbýlishúsinu að Dalsgerði 7 (íbúð b) á Verslunarmannafélagið góða 86 fm íbúð sem skiptist í stofu, eldhús, bað og 2 svefnherbergi.  Í íbúðinni er, auk búnaðar í stofu, svefnstæði fyrir 4-5, 2 gestarúm í geymslu, sængur fyrir 7 manns, barnarúm og barnasæng, eldhúsáhöld og borðbúnaður fyrir 12 manns, örbylgjuofn, gasgrill, sjónvarp og þvottavél.  Íbúðin er á jarðhæð og gengið úr stofu út á afgirta verönd.

Um Akureyri, höfuðstað Norðurlands þarf ekki að fjölyrða,  þangað er gott að koma og margt að sjá.  Þar er að finna alla þjónustu fyrir ferðamenn og þaðan er hægt að fara  í dagsferðir, t.d.  að Mývatni, til Ólafsfjarðar, Hríseyjar, Grenivíkur og svo mætti lengi telja.