Umgengnisreglur í orlofshúsum VR

Umgengnisreglur í orlofshúsum

  1. Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrum lausamunum.
  2. Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón, sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutíma.
  3. Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið við brottför og sjá um að hver hlutur sé á sínum stað.
  4. Leigjandi skal koma til dvalar í húsinu á skiptidegi (nánar í athugasemdum).
  5. Leigjandi þarf að hafa með sér handklæði, sápu, viskastykki, sængurver, lök og koddaver.
  6. Dvalargestir eru beðnir um að forðast hávaða með bílaumferð á orlofshúsasvæðinu.
  7. Leigjandi skal ganga vel um staðinn og gæta þess að spilla ekki gróðri eða landi á nokkurn hátt.
  8. Almennt er ekki leyfilegt að hafa með sér gæludýr í orlofshúsum VR. Undantekningar eru í nokkrum húsum, sjá nánar við hvert hús.
  9. Lesið vel leiðbeiningar sem festar eru upp í húsunum og skylt er að fara eftir.