VR á sex orlofshús í Húsafelli í Borgarfirði. Húsin eru leigð til félagsmanna allt árið, um helgar og virka daga. Húsin standa á rólegum stað í kjarrivöxnu umhverfi.

Í húsinu eru tvö svefnherbergi og svefnpláss fyrir sjö manns. Við húsið er gasgrill og heitur pottur.

Komu- og brottfarartímar:

Komutími kl. 17:00, brottför kl. 12:00, nema sunnudaga kl. 19:00

Áður en farið er heim aftur:

Þegar haldið er heimleiðis á ný þarf að gæta þess að ganga vel frá orlofshúsinu. Þvoið borðbúnað, eldhúsáhöld, takið úr uppþvottavélinni, þvoið gólf, gætið þess að gluggar séu vel lokaðir, kæliskápur sé hreinn og í sambandi á lægstu stillingu og að skrúfað sé fyrir allt vatn í vöskum og á baði. Skiljið innihurðir eftir opnar, dragið niður gardínur og læsið útihurð. Gestir eru vinsamlega beðnir um að taka allt sorp með sér og koma því í þar til gerða gáma.




Vinsamlega athugið að reykingar eru bannaðar. Gæludýr eru ekki leyfð.