Sómatún 1 Akureyri (Jarðhæð til hægri íb. 102).
Íbúðin er á jarðhæð til hægri í tveggja hæða fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2012. Í íbúðinni er svefnaðstaða fyrir sex manns. Tvíbreitt rúm er í hjónaherbergi, tvíbreitt rúm í öðru herbergi og tvö einbreið rúm í barnaherbergi. Ungbarnarúm og barnastóll eru í íbúðinni, auk þess sem hún er búin öllum helstu tækjum. Eldhúsið er vel tækjum búið; uppþvottavél, örbylgjuofn og ísskápur með frysti. Í þvottahúsi sem er inn af forstofu er þvottavél. Gasgrill og útihúsgögn eru á á stétt garðmegin. (Vetur 2026: Stólar í geymslu við hliðina á inngangi).
Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúð OVFÍ í Sómatúni.
VINSAMLEGA SÝNIÐ TILLITSEMI. ÍBÚÐIN ER Í FJÖLBÝLISHÚSI. HÁREYSTI ER BÖNNUÐ EFTIR KL. 22 VIRKA DAGA OG EFTIR MIÐNÆTTI UM HELGAR.
Athugið að stranglega bannað er framleigja íbúðina til ættingja eða vina.
Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.
Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma.
Ef einhverju er ábótavant varðandi þrif eða frágang fyrri leigjanda vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita strax við komu í húsið.