Bústaðirnir eru í Klapparholti í Borgarfirði. Aðeins 9 km. norður af Borgarnesi.
Húsin eru vel búin, í þeim eru þrjú svefnherbergi, 2 rúmgóð herbergi annað með tvíbreiðu rúmi og barnarúmi, hitt með tvíbreiðu rúmi og einbreiðu.

Yfir hluta hússins er svefnloft  þar er stórt fjölskylduberbergi með tvíbreiðu rúmi og svefnsófa. Húsið er fullbúið með vönduðum eldhústækjum. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill. Húsið stendur sér í kjarrivöxnu landi með fallegu útsýni og góðum gönguleiðum í kring. Stutt er í Borgarnes og alla þjónustu sem þar er.
Í húsinu eru hreinlætisvörur fyrir uppþvott og lokaþrif.  Taka þarf með rúmföt, handklæði og handsápu, viskustykki, borðtuskur, ruslapoka í ruslafötu og wc pappír. 

Einungs eru 5 km. í glæsilegan golfvöll að Hamri.

Athugið að heimilt er að vera með gæludýr í Klapparholti nr. 10.