Bústaðirnir eru um 80 fermetrar, sérlega glæsilegir og rúmgóðir, með stórri verönd og heitum potti.

Í göngufæri er þjónustumiðstöð en hún er lokuð á veturna. Þar er sundlaug ásamt heitum pottum, snókerborði og minigolfi. Við þjónustumiðstöðina er lítill golfvöllur og fótboltavöllur Stutt er í einn besta golfvöll landsins, Kiðjabergsvöllinn.

Í þeim eru þrjú svefnherbergi með rúmstæði fyrir níu manns, en sængur og koddar eru fyrir tíu manns. Í eldhúsi er eldavél með innbyggðum bakaraofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. Bústaðnum fylgir gasgrill, sjónvarp, DVD spilari, útvarp með geislaspilara og þvottavél. Barnarúm er í bústaðnum og barnastóll.
Á vetrum er hlið að orlofshúsasvæðinu lokað - lykla þarf að sækja á skrifstofu VFÍ.