Orlofsíbúð í Tröllagili 29, á 4. hæð

Íbúðin er eitt herbergi, stofa og eldhúskrókur, 64 m² . Íbúðin er á 4. hæð. Allir algengustu húsmunir og eldhúsáhöld fylgja. Svefnstæði eru fyrir sex: tvíbreitt rúm, tvíbreiður svefnsófi í stofu og tvær lausar dýnur. Sængur og koddar eru fyrir sex. Sjónvarp og vekjaraútvarp er í íbúðinni. Þvottahús er á hverri hæð en umsjónarmaður afhendir lykla. Hægt er að leigja sængurföt, aukadýnur og sængur. Barnarúm og barnastól má fá hjá umsjónarmanni. Hægt er að fá aðkeypta ræstingu við lok leigutímans. Gjald fyrir ræstingu er eftir samkomulagi við umsjónarmann