Bústaðurinn er í Klapparholti í Borgarfirði. Aðeins 9 km. norður af Borgarnesi.
Húsið er vel búið, í því eru þrjú svefnherbergi. Svefnpláss er fyrir 8 - 10 manns. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi (160 x 200) auk barnaferðarúms og hitt með tveimur kojum (90 x 200). Á efri hæð er svefnherbergi með tveimur einbreiðum rúmum (90 x 200) og tvíbreiður svefnsófi (140 x 200) í opnu rými. Húsið er fullbúið með vönduðum tækjum og húsbúnaði.  Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill. Fallegt útsýni er úr húsinu og mikið af góðum gönguleiðum í kring. Stutt er í Borgarnes í sund, verslandir og alla þjónustu sem þar er.

Í húsinu eru hreinlætisvörur fyrir uppþvott og lokaþrif.  Taka þarf með lök og sængurfatnað, handklæði og handsápu, viskustykki, borðtuskur, ruslapoka í ruslafötu og salernispappír. 

Í húsinu er nettenging.

Það eru einungis 5 km. í glæsilegan golfvöll að Hamri.

 

Athugið að stranglega er bannað að framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. 

Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.

Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.