Þriggja herbergja íbúð í Tröllagili 29, á 8. hæð. Íbúðin er um 74 fm, með tveimur herbergjum, stofu og eldhúskrók.

Tröllagil 29 er fjölbýlishús í Giljahverfi, eitt fjögurra háhýsa, og blasir við þegar ekið er um Hlíðarbraut. 

Allir algengustu húsmunir og eldhúsáhöld fylgja. Svefnstæði eru fyrir sex: Eitt tvíbreitt rúm, tvö einstaklingsrúm og tvíbreiður svefnsófi. Einnig eru tvær lausar dýnur í íbúðinni. Sængur og koddar eru fyrir sex. Sjónvarp og vekjaraútvarp er í íbúðinni. Þvottahús er á hverri hæð en umsjónarmaður afhendir lykla. Hægt er að leigja sængurföt, aukadýnur og sængur. Barnarúm og barnastól má fá hjá umsjónarmanni. Hægt er að fá aðkeypta ræstingu við lok leigutímans. Gjald fyrir ræstingu er eftir samkomulagi við umsjónarmann. Ef ræstingu er áblótavant verður íbúðin þrifin á kostnað leigjanda.

Í Tröllagili gilda allar almennar reglur um umgengni í fjölbýlishúsum. Reykingar og neysla áfengis er ekki leyfð í sameign. Reykingar eru einnig bannaðar í íbúðinni.