Bústaðurinn er í Klapparholti í Borgarfirði. Aðeins 9 km. norður af Borgarnesi.
Húsið er vel búið, í því eru þrjú svefnherbergi. Svefnpláss er fyrir átta. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi 160 x 200) auk barnaferðarúms og hitt með tveimur einbreiðum rúmum (90 x 200) Yfir hluta hússins er svefnloft  þar er stórt fjölskylduberbergi með tvíbreiðu rúmi (160 x 200) og einbreitt rúm (90 x 200) og eitt einbreitt rúm í opnu rými (90 x 200). Húsið er fullbúið með vönduðum eldhústækjum. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill. Húsið stendur sér í kjarrivöxnu landi með fallegu útsýni og góðum gönguleiðum í kring. Stutt er í Borgarnes og alla þjónustu sem þar er.

Í húsinu eru hreinlætisvörur fyrir uppþvott og lokaþrif.  Taka þarf með rúmföt, lök, handklæði og handsápu, viskustykki, borðtuskur, ruslapoka í ruslafötu og wc pappír. 

Í húsinu er nettenging.

Einungs eru 5 km. í glæsilegan golfvöll að Hamri.

Athugið að stranglega er bannað að framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. 

Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.

Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.