Ásatún 26 Akureyri er í Naustahverfi. Íbúðin er 110 fm á jarðhæð. Þvottahús með þvottavél og þurrkara er í íbúðinni. Almennur búnaður fylgir, þ.m.t nettenging. Sérmerkt bílastæði er fyrir utan merkt 101. Íbúðin er á jarðhæð til vinstri merkt 101. Svefnaðstaða: Þrjú svefnherbergi og svefnaðstaða fyrir 8 manns. Rúm eru 183 cm x 203, 153 x 203, og tvennar kojur með dýnustærð 90 x 200. Barnarúm og barnastóll eru á staðnum.

Framsal leigusamnings: Íbúðin er sameign félagsmanna í Stétt Vest - keypt og rekin af félagsmönnum. Við megum ekki framselja leigusamninginn án leyfis félagsins, með því að nota þitt nafn til að leigja íbúðina fyrir einhvern utan félagsins ertu að brjóta m.a á vinnufélögum þínum og öðrum félagsmönnum. Þeir sem eru utan Stétt Vest eiga að leigja íbúðir hjá sínu stéttarfélagi. 

Reykingar og veip: Skiltið um að reykingar og veip séu bönnuð í íbúðinni (þar með talið yfirbyggðum svölum) er ekki til skrauts - reykingar og veip er í alvöru bannað í íbúðinni.

Gleðskapur: Íbúðin er í fjölbýlishúsi - þó við séum í fríi á morgun er ekki víst að aðrir séu það. Virðum reglur húsfélagsins og höfum hemil á gleðinni.

Brottfaraþrif: Ekki er þörf á að skúra yfir gólfin en vinsamlegast gangið snyrtilega frá og hvern hlut á sinn stað og farið með sorp á næstu grenndarstöð. 

Ekki er heimilt að hafa gæludýr í íbúðinni