Í göngufjarlægð við Kringluna og Fjölbraut í Ármúla.
Komið er inn í parketlagt hol með fataskáp. Eldhúsið er flíslagt með hvítri innréttingu með beikiköntum.
Rúmgóð björt parketlögð stofa.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergið er með flísum útloftun og baðkeri.
Sameiginlegt þvottahús er við hlið íbúðarinnar, aðgangur er að hjólageymslu.
Hægt er að leigja á skrifstofu félagsins sængurver og handklæði.
Íbúðin er á jarðhæð. Gengið er inn um aðaldyr og farið niður stiga og er íbúðin á hægri hönd þegar komið er niður u.þ.b. 8 tröppur.