Umgengni
Umgengni lýsir innra manni og eru allir hvattir til að umgangast orlofshúsin með sóma. Ef eitthvað er athugavert við umgengni eða þrifnað húsanna við komu þá látið vita á skrifstofu félagsins.

Við brottför
Þrífa húsið, grillið og heita pottinn
Takið sjónvarp og útvarp úr sambandi
Athugið hvort allir gluggar séu lokaðir og kræktir
Hurðir vel lokaðar og læstar
Ekki taka hita af húsinu við brottför

Tæki og tól
Í öllum húsunum eru eldhúsáhöld, sængur og koddar. Einnig eru barnarúm og barnastólar í flestum húsunum.

Nauðsynlegt að taka með
sængurföt
klútar
diskaþurrkur