Stakkholt 2B í Reykjavík íbúð 101. Íbúðin er í nýlegu lyftuhúsi á 1. hæð.

Íbúðin er þriggja herbergja. Stofa, hjónaherbergi með hjónarúmi og barnaherbergi með rúmi 140x2. Barnarúm og barnastóll fylgja. 2 góðar aukadýnur eru í íbúðinni. Sængur og koddar eru fyrir 8. Leigjendur þurfa að hafa með sér rúmföt (lín) og handklæði.

Lyklar verða ekki notaðir í framtíðinni en aðgangskerfið er rafrænt, rafrænir dropar í stað lykla. Þeir verða notaðir til að komast í íbúð, inn í sameign og bílageymslu.

Eldhús er vel búið. Diskaþurrkur, borðklútar og gólfmoppa fylgja einnig allur búnaður og sápa til þrifa.
Stórt baðherbergi með sturtu, þvottavél og þurrkara.

Íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílakjallara merkt 101 fyrir íbúð 101 og er notkun þess heimil fyrir dvalargesti. Nánari upplýsingar eru í leigusamningi.
Sé íbúðinni ekki skilað hreinni verður leigutaki krafinn um þrifagjald 25.000kr.
Í íbúðinni er nettenging frá Símanum.

Íbúðin er vel staðsett í miðbæ Reykjavíkur við Hlemm. Nauðsynlegt er að virða húsreglur sem eru í sameign.

Reykingar eru bannaðar í íbúðinni.
Ekki er heimilt að hafa hunda né önnur gæludýr.