Íbúðin í Hrísey er staðsett um 150 metrum frá Ferjubryggju, beint fyrir ofan búðina.
Um er að ræða 5 svefnherbergja íbúð, 170 fm2. 5 svefnherbergi, baðherbergi og auka snyrting. 2 Svefnherbergi eru með tveimur 90X200 cm rúmum. 1 svefnherbergi með tveimur 90X200 cm rúmum ásamt tveimur svefnplássum í koju. 1 Svefnherbergið er með tveimur svefnplássum í koju og loks er eitt lítið herbergi með einu 90X200 cm rúmi. Í stofu er svefnsófi ásamt borði og stólum fyrir 8-10 manns. Í einu herbergjanna er barnarúm ásamt ferðarúmi inni í skáp. Í eldhúsi er uppþvottavél, borð, stólar og leirtau miðað við 10-12 manns. Í þvottahúsi er þvottavél.
Úti á lóð eru rólur og þvottasnúrur, á palli er eru borð, stólar og gasgrill.
Ferjan siglir á tveggja tíma fresti, fyrsta ferja fer frá Hrísey kl: 7 alla daga (fyrir utan sunnudaga) og síðasta ferð er kl: 23 frá Hrísey og 23:30 til baka frá Árskógsströnd.
Frá Árskógsströnd fer Ferjan 7:20-9:30-11:30-13:30-15:30-17:30-19:30-21:30-23:30.