Kiðjaberg er staðsett á lóð 64 í Grímsnesi. Ekki langt frá golfvellinum Kiðjabergsvelli. Ef ekið er frá þjóðvegi 1 frá Reykjavík er beygt upp á hringtorgi á Biskupstungnabraut áður en ekið er inn á Selfoss. Þá er ekið eftir þeim vegi í um 15 mínútur þar til komið er að gatnamótum Biskupstungnabrautar, Hallkelshóla og Kiðjabergsvegar. Beygt er til hægri niður Kiðjabergsveg. Stuttu eftir að ekið er fram hjá Göltur (vegur) sést bústaðurinn á hægri hönd. Um er að ræða 127 fm2 hús byggt árið 2022. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, þar af eitt með tvíbreiðu hjónarúmi og tvö með rúmum sem eru 1.50 m á breidd. Góð stofa og eldhús með öllum húsbúnaði. Þvottahús og geymsla. Á palli er heitur pottur, úti húsgögn og grill.
Varðandi afþreyingu á svæðinu ber fyrst að nefna golfvöllinn að Kiðjabergi sem er í 5 mínútna fjarlægð einnig er 4 holur par þrjú völlur niður við Gamlahús sem öllum er frjálst að nota, þar er líka fótbolta golf. Hestvatn þar sem hægt er að veiða og leika sér í fjöruborðinu og vera með báta ef vill. Einnig er hægt að kaupa veiðileyfi í Hvítá. Svo er örstutt í sundlaugina að Borg þar er einnig líkamsrækt.