Túngata 17 er tveggja hæða hús sem skipt er í tvær íbúðir, efri og neðri. Íbúðin sem um ræðir er á neðri hæð hússins, um 85 fermetrar að stærð og með svefnstaðstöðu fyrir 4. Íbúðin inniheldur nýuppgert eldhús með öllum helsta búnað, rúmgott andyri, þvottahús, stórt svefnherbergi og stofu með tveimur sófum sem hægt er sofa í. Fyrir utan íbúðina er fallegur garður með heitum potti, grilli og útihúsgögnum.

Ólafsfjörður er vel staðsettur á norðurlandi þar sem stutt er í flotta ferðamannastaði og tilvalið að fara í dagsferð á ýmsa vinsæla staði.

Staðsetning íbúðar er góð og fallegt útsýni frá henni. Stutt er í afþreyingu svo sem gönguleiðir fyrir útivistarfólk, sundlaug, leik- og sparkvöll. Um 150 metrar eru í Ólafsfjarðarvatn þar sem hægt er að veiða silung og 150 metrar í Kjörbúðina. 

Umsjónarmaður: Þorsteinn, sími: 8925451

Ath: Þvottahúsið er samnýtt með íbúð á efri hæð svo gætið þess að ganga vel um.