Á La Zenía svæðinu suður af Torrevieja stutt frá Villamartin, á Rafiðnaðarsamband Íslands þrjár nýjar íbúðir. Um er að ræða svokölluð "fjarkahús" þar sem fjórar íbúðir eru í húsinu. Íbúðirnar eru á tveimur hæðum. Baðherbergi er á sitthvorri hæð. Á neðri hæð er gengið inn í rúmgott alrými, stofa, eldhús og borðstofa. Einnig er eitt svefnherbergi með hjónarúmi (152 cm). Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi, annað með hjónarúmi (152 cm) og hitt með koju fyrir tvo og útgengi út á svalir úr báðum herbergjum, þar eru útihúsgögn og gasgrill. Ef gasið klárast þá vinsamlega farið með tóma kútinn út í garðyrkjumarkað sem er aðeins fyrir ofan hringtorgið þar sem komið var upp á Calle Clavo. Markaðurinn er á vinstri hönd 200 metrum þar fyrir ofan. Takið nótu og sendið skrifstofu Rsí með bankaupplýsingum. Einnig er góð matvöruverslun sem heitir Diaprix. Góð sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði. Sér bílastæði á lokaðri lóð fylgir. Aksturstími frá Alicante flugvelli er ca 50 mínútur sé farið eftir N332. Íbúðirnar eru í ca 20 mínútna göngufæri (ca 2.5 km) frá La Zenía Boulevard verslunarmiðstöðinni. Einnig er örstutt að ganga í Los Dolces þjónustukjarnann þar sem er gott úrval veitingastða og verslana. Miðborg Torrevieja er í ca 15 mínútnar akstursleið. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas ofl. 

Fast gjald er fyrir hverja nótt sem leigð er eða kr. 6.500 auk þrifagjalds kr. 15.000 sem bætist við fyrir hverja leigu, óháð tímalengd.