Heimilt er að hafa hunda í þessu húsi. 

Glæsilegt 90 fm. hús með 3 svefnherbergjum, svefnpláss fyrir 10. Herbergi 1. Tvíbreitt rúm (160x200 cm ein dýna. Herbergi 2. Tvíbreitt rúm (150x200 cm ein dýna) koja (80x200 cm)  Herbergi 3. Tvíbreitt rúm (150x200 cm ein dýna) koja (80x200 cm)  SKYLDA ER AÐ NOTA SÆNGURLÍN Í ÖLL RÚM. Húsið er búið öllum helstu þægindum s.s flatskjá í stofu og hjónaherbergi. DVD og CD spilara, stórum tvískiptum ísskáp, uppþvottavél. Í húsinu er stórt alrými og hiti í gólfum. Vandað hefur verið til allra innréttinga og húsbúnaðar. Á þrjá vegu umhverfis húsið er stór verönd að hluta til undir þaki, heitur pottur, baðhús með sturtu og geymsla með þvottavél, glæsileg útihúgögn og gasgrill.  Internet-tenging er í húsinu. Leiðbeiningar eru í húsinu með tengingar.

Húsið er í útleigu allt árið.
Aðstaða til leikja og útivistar á svæðinu er glæsileg og opin fyrir alla er svæðið gista. Þarna má finna  fótboltavöll, körfuboltavöll, púttvöll, par 3 golfvöll, stórt "blöðru"trampolín, margs konar leiktæki og margt margt fleira. Veiði er leyfð í vatninu frá bökkum þess og allt að 60 faðma frá landi, á sumrin er hægt að leigja bát hjá umsjónarmanni.

Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.

Reglur vegna hundahalds: