Húsið er hannað með tilliti til fatlaðra. Húsið er með einu svefnherbergi, alrými og eldhúskrók. Svefnpláss er fyrir 4, tvíbreið neðri koja, tvær einbreiðar efri kojur og barnarúm. Baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja sængur og koddar fyrir 4. -Skylt er að nota sængurlín í öll rúm -  Í eldhúskrók er hellu borð, ísskápur og örbylgjuofn. Sjónvarp er í húsinu og einnig fylgir gasgrill.  Ekki er þráðlaust net í húsinu.  Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.