Glæsilegt nýtt hús, tekið í notkun um haust 2021. Húsið er u.þ.b. 37fm að stærð, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og dagsstofa. Í svefnherberginu er hjónarúm, sængur og koddar fylgja. - skylt er að nota sængulín á rúmið -.  Sængurlín og handklæði fylgja ekki. Húsið er fullbúið húsgögnum og öllum almennum áhöldum til matargerðar, borðbúnaður er fyrir 4 manns. Ísskápur, eldavél og uppþvottavél (þvottaefni fylgir)  Á rúmgóðri verönd er heitur pottur.  Þvottavél (þvottaefni fylgir ekki,) útihúsgögn og gasgrill eru í útigeymslu. Internet-tenging er í húsinu. Leiðbeiningar eru í húsinu með tengingar.
Húsið er opið til útleigu allt árið.  Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu. 


Aðstaða til leikja og útivistar á svæðinu er glæsileg og opin fyrir alla er svæðið gista. Þarna má finna fótboltavöll, körfuboltavöll, púttvöll, par 3 golfvöll, stórt "blöðru"trampolín, margs konar leiktæki og margt margt fleira. Veiði er leyfð í vatninu frá bökkum þess og allt að 60 faðma frá landi, á sumrin er hægt að leigja bát hjá umsjónarmanni.