Orlofshúsið í Vaglaskógi er á tveimur hæðum á mjög fallegum stað í skóginum í góðri fjarlægð  frá annarri byggð. Í húsinu eru tvö svefnherbergi á hvorri hæð. Hjónarúm er í báðum herbergjum á neðri hæð (152 cm) ásamt koju í öðru herberginu. Á efri hæð er herbergi með hjónarúmi (152 cm) og tvö einbreið rúm í hinu. Baðherbergi með WC er á neðri hæð og salerni á efri hæð. Í sér húsi við heita pottinn er baðherbergi og geymsla. Stórt svæði og leiktæki eru fyrir framan húsið. Vaglaskógur er í 40 km fjarlægð frá Akureyri. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu. 

Þráðlaust net er í íbúðinni