Íbúðin er 3ja herb. ásamt eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Það er tvöföld stofa, svefnherbergi með hjónarúmi og 1 minna herbergi með koju (3 rúmstæði) í annarri stofunni er svefnpláss fyrir tvo í svefnsófa. Í húsinu er sturtuklefi, sjónvarp, dvd spilari, útvarp, örbylgjuofn, eldavél og bakaraofn, þvottavél og þurrkari, barnastóll og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 7,  fullorðna og einnnig er barnasæng og barnakoddi en leigjendur þurfa að hafa með sér lín, handsápu og annað þess háttar.