Í húsinusem er 110 fm. eru 4 svefnherbergi, með rúmum fyrir 9 fullorðna, fullbúið öllum helstu heimilistækjum og með heitum potti.

Í þremur herbergjum eru tvíbreið rúm (110 cm., 140 cm. og 160 cm. á breidd) og í tveimur herbergjum eru auk þess kojur (80 cm. á breidd), í einu herbergi er rúm fyrir einn.
Húsið er búið öllum helstu þægindum s.s flatskjá í stofu, stór ísskápur í eldhúsi og tvískiptur ísskápur m/frysti í holi inn af eldhúsi. Í húsinu er stórt alrými. Internet-tenging er í húsinu. Leiðbeiningar eru í húsinu með tengingar.


Húsið er í útleigu allt árið. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.