Íbúðarhúsið við Túngötu 15 í Súðavík er 130 fm. að stærð og skiptist í fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús. Svefnaðstaða, sængur og koddar eru fyrir 8 manns. auk þess barnarúm og barnastóll. Borðbúnaður og nauðsynleg áhöld til matargerðar eru í húsinu, í eldhúsi er uppþvottavél og í þvottahúsi er þvottavél. Húsinu fylgir gasgrill.
Óheimilt er að vera með húsdýr í og við húsið.