Hyrnuland er á neðra svæðinu í Hlíðarfjalli, innst í botnlanga fyrir neðan götu. Húsið er 116 fermetrar, þrjú svefnherbergi, tvö með hjónarúmum 160 cm og eitt með tveimur stökum rúmum og tveimur niðurfellanlegum kojurúmum. Í húsinu er tvö baðherbergi. Þvottavél og þurrkari eru í geymslunni sem gengið er inní utanfrá. Þar sem að það er fer ekki umsjónarmaður í húsið eru félagsmenn beðnir að setja í þvottavél suðuþvott þegar hann fer að safnast upp. Eins ef verða "slys" í rúmum að setja þá yfirdýnur eða annað í vél. Þvottagrind er í geymslunni. Rafhleðslustöð er við húsið fyrir týpu 2. Kapall í geymslu. Húsinu fylgir hitaveitupottur.