Upplýsingar eignar  -  Bjarkarsel, Flúðum
Almennar upplýsingar
Nafn Bjarkarsel, Flúðum Tegund Sumarbústaður
Svæði Suðurland Öryggis kóði
Heimilisfang Ásabyggð, 846 Flúðum
Lýsing

EINGÖNGU SUMARLEIGA

Orlofshúsið er staðsett í Ásabyggð á Flúðum, ca 100 km frá Reykjavík. Húsið sem er 52 fm skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi með sængum og koddum og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss fyrir fjóra í tveimur tvíbreiðum rúmum.  Stofan er með sjónvarpi, dvd og útvarpi og fullbúið eldhús. Stór sólpallur er við húsið og þar er heitur pottur í góðu skjóli með gasgrilli.

Mikill trjágróður er umhverfis með útiverusvæði fyrir börnin. Mikið er af merktum gönguleiðum í nágrenningu. Stutt er í hraðbanka, verslun, golfvelli, sundlaug, veitingastaði og fleira. Skammt frá Flúðum er Gullfoss, Geysir, Háifoss, Gjáin og Þjórsárdalur svo eitthvað sé nefnt.