Upplýsingar eignar  -  Þorrasalir íbúð 102
Almennar upplýsingar
Nafn Þorrasalir íbúð 102 Tegund Íbúð
Svæði Höfuðborgarsvæðið Öryggis kóði
Heimilisfang Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi
Lýsing

Íbúðin er í fjölbýlishúsi staðsett í útjaðri Kópavogs skammt frá Smáralind verslunarmiðstöðinni. Fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni og stutt í þjónustu.

Félagið leggur mikla áherslu á góða umgengni og tilitssemi við aðra íbúa hússins. Gerist menn bortlegir við húsreglur fyrirgera þeir sér frekari rétt til að fá leigðar íbúðir eða hús af félaginu. Húsreglurnar má finna í möppu í skáp í íbúðinni.

Íbúðin er vel útbúin með tveimur svefnherbergjum og gistiaðstöu fyrir 6 manns. Góð bílastæði eru við húsið og bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni.

Komu og brottfarartími: Leigutaka er heimilt að fara inn í íbúðina kl. 16:00 á komudegi. Brottfarartími er kl. 12:00.

Stafrænn talnalás er á íbúðinni og númerið á honum er 2593. Stimpla þar inn númerið og að því loknu að ýta á "staðfesta" hnappinn neðst í hægra horninu. Við það opnast dýrnar.