Upplýsingar eignar  -  Þorrasalir íbúð 201
Almennar upplýsingar
Nafn Þorrasalir íbúð 201 Tegund Íbúð
Svæði Höfuðborgarsvæðið Öryggis kóði
Heimilisfang Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi
Lýsing

Íbúðin er í fjölbýlishúsi staðsett í útjaðri Kópavogs skammt frá Smáralind verslunarmiðstöðinni. Fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni og stutt í þjónustu.

Félagið leggur mikla áherslu á góða umgengni og tilitssemi við aðra íbúa hússins. Gerist menn bortlegir við húsreglur fyrirgera þeir sér frekari rétt til að fá leigðar íbúðir eða hús af félaginu. Húsreglurnar má finna í möppu í skáp í íbúðinni.

Íbúðin er vel útbúin með tveimur svefnherbergjum og gistiaðstöu fyrir 5 manns. Góð bílastæði eru við húsið og bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni.

Komu og brottfarartími: Leigutaka er heimilt að fara inn í íbúðina kl. 16:00 á komudegi. Brottfarartími er kl. 12:00.

Talnalás: Það er talnalás á hurðinni. Til að opna stimplið númerið inn í lásinn og ýtið næst á staðfesta merkið neðst í horninu hægra megin. Við það opnast dyrnar.