Afbókun innanlands

Afpöntun þarf að berast í tölvupósti á netfangið fit@fit.is.

Ef hætt er við leigu er bókun á húsinu tekin út og þar með losað fyrir aðra leigjendur.

Einnig er húsið auglýst á heimasíðu félagsins og á facebook-síðu félagsins.

Ef upp kemur aðfinnsla varðandi orlofshús bendum við félagsmönnum góðfúslega á að hafa strax samband við umsjónarmann svo að hægt sé að laga það sem að er. Vinsamlegast athugið að aldrei er færð inneign ef félagsmaður notar tímann sinn í orlofshúsinu án þess að hafa samband við umsjónarmann.

Ef ekki næst að endurleigja er ekkert bakfært 

Endurleigist húsið er færð inneign hjá leigjanda inni á orlofsvef FIT.

Inneignin er í hlutfalli við það hversu mikið endurleigist.

Punktar vegna sumarleigu eru bakfærðir ef endurleiga á sér stað.

Breytingargjald

Fyrir breytingar eða afpöntun á öllum bókunum á orlofsvef er tekið breytingagjald kr. 3.000.-


Afbókun á húsinu í Orlando

Afpöntun þarf að berast í tölvupósti á netfangið fit@fit.is.

Breytingargjald

Fyrir breytingar eða afpöntun á öllum bókunum á orlofsvef er tekið breytingagjald kr. 3.000.-