Afbóka:
ATH til þess að afbóka eða breyta bókun þarf að senda töluvpóst á sjodir@bhm.is Endurgreitt er í hlutfalli samkvæmt Verklagsreglum OBHM inn á sama kort og greitt var með fyrir bókunina. Það getur tekið nokkra daga að sjá færsluna á yfirlitinu.
Vetrarleiga:
- Ef afbókað er með viku fyrirvara þá fær sjóðfélagi 80% endurgreitt af leigugjaldi sínu.
- Ef afbókað er með minna en viku fyrirvara fær sjóðfélagi einungis endurgreitt 80% af leigugjaldi sínu ef húsið leigist aftur.
Sumarleiga:
- Ef afbókað er með tveggja vikna fyrirvara þá fær sjóðfélagi 80% endurgreitt af leigugjaldi sínu.
- Ef afbókað er með minna en tveggja vikna fyrirvara fær sjóðfélagi einungis endureitt 80% af leigugjaldi sínu ef húsið leigist aftur.
Páskaleiga:
- Ef afbókað er með viku fyrirvara þá fær sjóðfélagi 80% endurgreitt af leigugjaldi sínu.
- Ef afbókað er með minna en viku fyrirvara fær sjóðfélagi einungis endurgreitt 80% af leigugjaldi sínu ef húsið leigist aftur.
Veikindi:
- Senda þarf tölvupóst á sjodir@bhm.is áður en bókun hefst til þess að tilkynna veikindi.
- Ef veikindi hindra dvöl sjóðfélaga fær hann 100% endurgreiðslu óháð því hversu langur tími er í að dvöl í orlofskosti hefjist.
- Sjóðfélagi þarf síðan að skila inn læknisvottorði ef um veikindi er að ræða á netfangið sjodir@bhm.is. Vottorðið má hins vegar berast eftir að dvöl hefst.
Breyta leigu:
- Sjóðfélaga er heimilt að breyta hverri bókun sinni í eitt skipti.
- Sjóðfélaga er heimilt að breyta bókun sinni með sólahrings fyrirvara innan sömu dagsetninga.
- Sjóðfélaga er heimilt að breyta bókun sinni með sjö daga fyrirvara ef dagsetningar eru ekki þær sömu.
- Ef sjóðfélagi færir sig yfir í dýrari leigukost þá greiðir hann mismuninn af leigugjaldinu.
- Ef sjóðfélagi færir sig yfir í ódýrari leigukost er mismunur af leigugjaldi ekki endurgreiddur.
- Ekki er heimilt að færa bókaða leigu yfir á leigutímabil sem ekki hefur verið opnað fyrir.