Lýsing:

Þetta hús er nýtt og er fyrir 6 manns (en borðbúnaður fyrir 10 manns). Í húsinu eru 3 svefnherbergi; eitt herbergi er með rúmi sem er 160 cm x 200 cm og fataskáp. Í hinum tveimur herbergjunum eru 2 dýnur sem eru 80 cm x 200 cm. Í stofu eru þægilegur sófi, stóll og sjónvarp. Gæludýr eru ekki leyfð upp í sófa eða rúmum. Eldhúsið er með góðum aðbúnaði, eldhúsborði og 8 stólum. Baðherbergi er rúmgott og góður gangur. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og grill. 

Leigt lín & keypt þrif:

Þvottur & Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) og þrifum fyrir sjóðfélaga. Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst panta@thvotturoglin.is eða hringja í síma 846-0845. Athugið að panta þarf lín og/eða þrif með a.m.k. tveggja sólahringa fyrirvara. Sjóðfélagar panta þrif og lín sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.