Vinsælar eignir Fleiri eignir >>
  • Spánn - La Marina Placido Domingo (3-8) 38 Urban

  • Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu til að leigja húsið á La Marina. Gott hús í íbúðarkjarna á La Marina á suður Spáni, nærri Alicante. Svefnaðstaða fyrir 6 manns. Við húsið er sundlaug sem er sameiginleg með húsunum sem tilheyra kjarnanum. Ef á barnarúmi og barnastól þarf á að halda hafa þá samband við umsjónarmann. Börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum við laugina, eins eru boltar og annað dót bannað við sundlaugina. Lykla þarf að sækja á skrifstofu okkar að Krossmóa 4

  • Nánar >>
  • Eyrarhlíð 44 - Munaðarnes

  • Húsið sem er um 52m² samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Verönd er við húsið.Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í koju í hvoru barnaherbergi. Sængur og koddar eru í húsinu en sængurföt verður leigutaki að hafa með sér sjálfur.  Lykla þarf að sækja á skrifstofu okkar að Krossmóa 4

  • Nánar >>
  • Efri - Reykir

  • Hlýlegt sumarhús í landi Efri - Reykja í Biskupstungum. Húsið er 4 herbergja (3 svefnherbergi og stofa). Í Hjónaherbergi er 160cm breytt hjónarúm, náttborð, fataskápur og barnarúm. Herbergi 2 er með 120 cm breiðu rúmí. 3.herbergi er með koju og bedda. Eldhúsið er vel búið er með borðbúnaði fyrir 12 manns. Loka þarf fyrir neysluvatn er hús er yfirgefið , Það er lokað fyrir neysluvatnið með því að skrúfa fyrir krana undir borði inn í geymslu. ( áríðandi að þetta sé gert) Lykla þarf að sækja á skrifstofu okkar að Krossmóa 4

  • Nánar >>
  • Seljahlíð 7g Akureyri

  • Skemmtileg raðhús á 1 hæð . Húsið er staðsett í Glerárhverfinu á Akureyri, stutt í alla þjónustu. Í húsinu er 3 svefnherbergi, hjónarúm í neinu, svefnsófi í öðru og kojur og barnarúm í því 3. Lykla þarf að sækja á skrifstofu okkar að Krossmóa 4

  • Nánar >>
  • Eyrarhlíð 43 - Munaðarnesi

  • Húsið sem er um 52m² samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Verönd er við húsið.Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í koju í hvoru barnaherbergi. Sængur og koddar eru í húsinu en sængurföt verður fólk að koma með að heiman. Lykla þarf að sækja á skrifstofu okkar að Krossmóa 4

  • Nánar >>