
Um 30 km. fyrir austan Höfn í Hornafirði standa orlofshúsin í Klifabotni í Lónssveit á gömlum sjávarkambi. Á svæðinu sem er afgirt eru þrjú önnur orlofshús, auk húss með sameiginlegri gufubaðstofu og þvottavél. Útsýni er til sjávar og fjalla. Í nágrenninu er margt að skoða, Laxárdalur, Gjádalur, Hvannagil ofl. ofl. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, stofa, borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnaðstaða er fyrir 8 manns og jafnmargar sængur. Í útigeymslu er gasgrill og útihúsgögn.
-
Nánar >>
|
|

Um 30 km. fyrir austan Höfn í Hornafirði standa orlofshúsin í Klifabotni í Lónssveit á gömlum sjávarkambi. Á svæðinu sem er afgirt eru þrjú önnur orlofshús, auk húss með sameiginlegri gufubaðstofu og þvottavél. Útsýni er til sjávar og fjalla. Í nágrenninu er margt að skoða, Laxárdalur, Gjádalur, Hvannagil ofl. ofl. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, stofa, borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnaðstaða er fyrir 8 manns og jafnmargar sængur. Í útigeymslu er gasgrill og útihúsgögn. Húsið eru til útleigu allt árið.
-
Nánar >>
|
|

Íbúðarhúsið við Túngötu 15 í Súðavík er 106 fm. að stærð og skiptist í fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús. Svefnaðstaða, sængur og koddar eru fyrir 10 manns, þar af 2ja manna svefnsófi í stofu, auk þess barnarúm og barnastóll. Borð búnaður og nauðsynleg áhöld til matargerðar eru í húsinu. Húsinu fylgir kolagrill.
-
Nánar >>
|
|

Í þessu notalega húsi eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss og sængur eru fyrir 6 manns. Húsinu fylgja útihúsgögn á suðurverönd og kolagrill. Húsið stendur í nálægð við hótel Flókalund með ægifögru útsýni yfir Vatnsfjörð og út á Breiðafjörðinn, fjöruferð með börnin er hin besta skemmtun og í göngufæri.. Mikil veðursæld er á svæðinu þar sem vestfirsku fjöllin skýla fyrir norðanáttinni og á sólríkum dögum má gæta sín að sólbrenna ekki. Á svæðinu er sundlaug, opnunartími er auglýstur á staðnum. Ekki er langt að fara til að njóta ægifagurrar náttúru vestfjarða í aðeins eins til tveggja tíma aksturfjarlægð er Látrabjarg sem gnæfir þverhnípt í sjó og er vestarsti oddi landsins, álíka langt er í norðurátt til Ísafjarðar. Rauðisandur er með fallegri stöðum landsins og er hann á leiðinni áður en komið er út að Látrabjargi. Fjallfoss eða Dynjandi, einn af fallegri fossum landsins er í botni Arnarfjarðar þegar komið er norðanmegin niður af Dynjandisheiði, ekki langt frá er Mjólkárvirkjun. Húsið er afar vel staðsett ef skoða á vestfirði og oftar en ekki er þar mun hlýrra og lygnara en fram kemur í veðurfregnum þar sem djúpir og gróðursælir firðir veita skjól, víða eru hvítar sandstrendur en varast ber að dýpi getur verið mikið mjög nærri strönd og flestir vita að óvíða eru betri berjalönd en fyrir vestan.
Húsið er eingöngu í sumarútleigu, frá lok maí til 15. sept. árlega.
-
Nánar >>
|
|

Orlofshúsabyggðin að Illugastöðum í Fnjóskadal er í um 50 km. fjarlægð austan Akureyrar. Á svæðinu á fjöldi verkalýðsfélaga orlofshús, þar er þjónustumiðstöð, sundlaug og gufubað auk þess verslun sem þjónar gestum orlofshúsanna. Stutt er í Vaglaskóg sem er vinsælt útivistarsvæði og fjölda vinsælla ferða mannastaða á Norðurlandi. Í húsinu eru 3 svefnherbergi. Eitt herbergi með hjónarúmi og tvö með einbreiðum kojum. Svefnpláss og sængur eru fyrir 6 manns, möguleiki að fá lánaðar dýnur í Karnahúsi. Í alrými er setustofa, borðstofa og eldhúskrókur, auk þess baðherbergi með sturtu. Heitur pottur er á verönd, útihúsgögn og gasgrill. Á svæðinu er sundlaug, heitir pottar og gufubað fyrir orlofsgesti er verði stillt í hóf. Minigolf er á svæðinu og eru kylfur leigðar hjá sundlaugarverði, einnig er fótboltavöllur,blakvöllur og leiktæki. Verslun með helstu nauðsynjar er í kjarnahúsi. Leyfilegt er að aka að húsunum við komu og brottför, á öðrum tímum er umferð bönnuð nema af heilsuástæðum og skal þá hafa samband við staðarhaldara. Húsið er ingöngu í sumarútleigu.
-
Nánar >>
|